Matstofan

Matstofan.is forsíða Bæklingur

Matstofan

Í samvinnu við auglýsingastofuna Árnasyni hefur webdew unnið fyrir Matstofuna á Höfðabakka 1. Matstofan framreiðir heimilismat í hádeginu, virka daga, á sanngjörnu verði.

Unnið var nýtt útlit fyrir vefinn, ljósmyndir teknar til notkunar á vefnum og samfélagsmiðlum. ný virkni fundin til að einfalda vinnu við að setja upp matseðil dagsins og matseðil vikunnar.

Sérstaklega var unnið að leitarvélabestun fyrir Matstofuna, ekki aðeins á nýja vefnum sjálfum heldur heildstætt unnið að því að bæta niðurstöður í leitarvélum.

Að auki voru gerðar nýjar merkingar á framhlið Matstofunnar og einblöðungur var brotinn um og prentaður sem dreift var til fyrirtækja í völdum póstnúmerum. Þannig kemur webdew einnig að markaðssetningu með hefðbundnum miðlum, enda mikilvægt að ímynd og skilaboð hefðbundinna og stafrænna miðla séu í takt.

webdew annaðist

  • Vefráðgjöf
  • Virkni í viðbótum fundin og prófuð
  • Innleiðing og kennsla
  • Stílisering ljósmynda
  • Textaskrif fyrir vef og einblöðung
  • Tenglun við viðskiptavin
  • Verkefnastýring

Skoða vefinn

http://matstofan.is/

Skoða bæklinginn

Matstofan, einblöðungur.pdf