Leitarorðaherferðir (e. Pay Per Click) er oft skammstafað PPC á ensku. Átt er við auglýsingaherferðir á Internetinu þar sem leitarorð eru skilgreind, þegar þau eru slegin inn í leitarvélina birtist annað hvort vefborði eða textaauglýsing og ef viðkomandi notandi smellir á auglýsinguna, greiðir þú fyrir birtinguna, annars ekki.
Á vettvangi leitarvélanna ber Google höfuð og herðar yfir keppinauta sína, með nærri 90% markaðshlutdeild leitarvéla á heimsvísu. Það er ekki að ástæðulausu að við segjum: „Gúgglaðu það“.
Google Ads auglýsingar
Google Ads er verkfærið sem Google býður frítt uppá til þess að halda utan um og stýra auglýsingum á leitarvélinni. Þú sérð kostaðar leitarniðurstöður bæði efst og neðst í leitarniðurstöðunum sem Google gefur þér sem svar við því sem þú ert að leita að.
Skilgreingin leitarorða
Hvaða orð eða orðasamband sem tilvonandi viðskiptavinur notar um vöruna eða þjónustuna er mikilvægt að skilgreina áður en haldið er af stað. Samheiti, eintala, fleirtala og fallbeyging skipta líka máli.
Textaauglýsingar eða vefborðar?
Textaauglýsingar eða keyptar leitarniðurstöður eru allt eins árangursríkar og vefborðar sem innihalda lýsandi myndefni auk skriflegra skilaboða. Hvað hentar best í hverju tilviki fyrir sig er metið.
Smellihlutfall
Til þess að meta árangur leitarorðaherferða og vefauglýsinga er reiknað smellihlutfall (e. Click Through Rate).
Lendingarsíður
Vefsíðan sem þú heimsækir þegar þú smellir á kostaða leitarniðurstöðu eða vefborða er kölluð lendingarsíða. Það er alls ekki mælt með því að það sé forsíða vefsins sem þú ert heimsækja, þvert á móti þarf fyrir hverja herferð að hugsa um lendingarsíður. Viðeigandi lendingarsíða með skilgreindu leitarorði eykur líkurnar á því að heimsóknin skili árangri og þú seljir vöruna/þjónustuna þína.
Hvernig virka leitarorðaherferðir?
Hafðu samband, sendu tölvupóst á dew@webdew.is eða hringdu í síma 690 1205. Fyrst og fremst er verið að horfa á Google og tólin sem þar eru í boði. Við skilgreinum leitarorðin, skrifum auglýsinguna og veljum myndefnið ef við á, lendingarsíður eru útbúnar og tenglar settir inn fyrir þær.
Eftir að leitarorðaherferð er hleypt af stokkunum þarf hún eftirfylgni, hvaða leitarorð eru að skila árangri og hver ekki, eru einhver of dýr og klára fjárhagsáætlunina? Mundu að þú borgar bara fyrir smellina sem verða að heimsókn yfir á þinn vef.
Hvað kosta leitarorðaherferðir?
Fyrir hverja leitarorðaherferð þarf að setja niður kostnaðar- og tímaáætlun, hvað viltu eyða miklu og á hve löngum tíma? Samkeppni um leitarorð er mishörð, það eru bæði til leitarorð sem eru mjög dýr og ódýr.