Skip to content
webdew
  • Verkefnin
    • Andrými.is
    • Culina.is
    • Eldgos á Reykjanesi – Exclusive Travel
    • Eldhúsgaldrar
    • Fugl ársins
    • Fluidfilm.is
    • Gleraugnabúðin Mjódd
    • Grimma bókhaldsþjónusta
    • Húsamálarinn.is
    • Kjötsmiðjan 30 ára
    • Lestur.is
    • Skyndiprent.is
    • Eldri verkefni
      • Bókhaldsþjónustan Núll
      • #Fordómalaus
      • #Gott að lesa
      • Hugarfrelsi.is
      • Hús sjávarklasans
      • Íslenski sjávarklasinn
      • Lestrarsetur
      • Lóðasláttur
      • Matstofan leitarvélabestun
      • Matstofan
      • Offroad Iceland.is
      • Reisum.is
      • #RomanticReykjanes
      • Unique.is
      • Verklagnir.is
  • Þjónustan
    • Leitarvélabestun
    • Leitarorðaherferðir
    • Markaðsherferð með tölvupósti
    • Markaðssetning á netinu
    • Samfélagsmiðlar
    • Vefsíðugerð
    • Vefstefna
    • Vefstjóri til leigu
    • Þjónustuskoðun vefs
  • Um webdew
    • Bloggið
  • Hafa samband

Heim | Project Tags | prófarkalestur

Dögg hjá webdew framkvæmdi þjónustuskoðun á vef Gleraugnabúðarinnar í Mjódd.

Gleraugnabúðin Mjódd

  • 3. febrúar 2023
  • by Dögg Matthíasdóttir

Gleraugnabúðin í Mjódd

Gleraugnabúðin í Mjódd býður vönduð gleraugu á hagstæðu verði. Gleraugnabúðin í Mjódd annast sjónmælingar og aðstoðar þig við val á umgjörðum. Hjá Gleraugnabúðinni í Mjódd getur þú valið úr vönduðu úrvali af gleraugum fyrir alla aldurshópa og öll helstu verkefni.

Gleraugnabúðin í Mjódd er með vef og Dögg hjá webdew framkvæmdi þjónustuskoðun á vefnum árið 2022.

Vefurinn var í ágætu ástandi, en eins og alltaf þegar þjónustuskoðun á vef er framkvæmd, koma í ljós þarfar úrbætur, sem oftast er auðvelt að hrinda í framkvæmd.

Í tilfelli Gleraugnabúðarinnar var ekki búið að setja upp greiningartólið Google Analytics, svo að það lágu engar upplýsingar fyrir um notkun notenda á vefnum.

Með því að hafa greiningartól uppsett er hægt að svara spurningum eins og hvaða tæki notendur nota þegar þeir heimsækja vefinn, nota þeir snjallsíma eða tölvur? Eins er hægt að fá mikilvægar upplýsingar um fjölda notenda, fjölda heimsókna, lengd heimsóknanna, hversu margar síður vefsins eru skoðaðar, hvaða vefsíður eru skoðaðar og svo mætti áfram lengi telja. Það er því alveg jafn mikilvægt að hafa greiningartól eins og að þekkja þá viðskiptavini sem koma í verslunina, þá veistu hvað þeir vilja og getur betur komið til móts við þarfir þeirra.

Þrátt fyrir að skorta nauðsynlegar upplýsingar var hægt að ráðast í ýmsar úrbætur.

Uppsett þema á vefnum var ágætt til sýns brúks, en það hafði þó ekki verið aðlagað nægilega vel til að skalast á snjallsímum. Efni vefsins var því yfirfarið, samræmt og leiðrétt og sérstaklega skoðað fyrir farsíma. Þá var farið yfir vefinn með leitarvélabestun í huga og gerðar úrbætur í þeim efnum.

webdew annaðist

  • Þjónustuskoðun á vef
  • Leitarvélabestun
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Vefstjóri til leigu 
  • Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum

Skoða vefinn

Gleraugnabúðin Mjódd 

Dögg hjá webdew framkvæmdi þjónustuskoðun á vef Gleraugnabúðarinnar í Mjódd.

 

 

Dögg hjá webdew skrifaði nýja bloggfærslu fyrir Exclusive Travel þegar eldgos hófst á Reykjanesi í ágúst 2022.

Eldgos á Reykjanesi – Exclusive Travel

  • 3. febrúar 2023
  • by Dögg Matthíasdóttir

Exclusive Travel er ferðaþjónustufyrirtæki sem skipuleggur lúxusferðir fyrir viðskiptavini sína, sérsniðnar að þeirra þörfum.

Það fór að gjósa á Reykjanesi í ágúst 2022. Af því tilefni setti Dögg hjá webdew saman færslu á vef þeirra, með öllum helstu upplýsingum varðandi öryggi og ferðalög á gosstöðvunum.

webdew annaðist

  • Efnisskrif á ensku
  • Myndvinnsla (Ljósmyndir ©Alli Möller)
  • Leitarvélabestun
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Vefstjóri til leigu 
  • Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum

Skoða vefinn

Exclusive Travel

 

Dögg hjá webdew skrifaði nýja bloggfærslu fyrir Exclusive Travel þegar eldgos hófst á Reykjanesi í ágúst 2022.

Dögg hjá webdew skrifaði nýja bloggfærslu fyrir Exclusive Travel þegar eldgos hófst á Reykjanesi í ágúst 2022.

Dögg hjá webdew.is gerði vefinn fyrir kosningu um fugl ársins

Fugl ársins

  • 3. febrúar 2023
  • by Dögg Matthíasdóttir

Fuglavernd stóð annað árið í röð fyrir valinu á fuglí ársins.

Fuglavernd leitaði til webdew til þess að útbúa vef til þess að halda utan um tilnefnda fugla, kosningastjóra og svo kosninguna sjálfa, þannig að verkefnið var sett upp í nokkrum skrefum.

Vefur í WordPress varð fyrir valinu, enda það vefumsjónarkerfi með ráðandi markaðshlutdeild.

Ljósmyndir og upplýsingar um fuglana komu frá starfsmönnum Fuglaverndar og verkefnisstjóra fugls ársins, Brynju Davíðsdóttur.

Fyrst var vefurinn settur upp með það að markmiði að ná til kosningastjóra, þ.e. til þeirra aðila sem hafa hug á því að velja sér fugl til að koma honum á framfæri í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Þá var efnið einmitt framsett með það í huga að auðvelt væri að deila því á samfélagsmiðla.

Eftir að fuglarnir í framboði höfðu hlotið kosningastjóra, tók við tímabil kosningarinnar. Til þess var valin viðbót, sem takmarkaði kosningaþátttöku við eitt sinn, svo hver þátttakandi í kosningunni fékk aðeins eitt atkvæði.

Alls kusu 2100 mannns um fugl ársins 2022 og hlaut maríuerla yfirburðakosningu og sigraði með 21% atkvæða.

webdew annaðist

  • Vefstefnumótun
  • Vefsíðugerð
  • Hlutverk og markmið skilgreind
  • Veigamestu verkefni vefsins skilgreind
  • Val tæknilegra viðbóta
  • Útlit, litir og grafík valin
  • Myndvinnsla
  • Leitarvélabestun
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Vefstjóri til leigu 
  • Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum

Skoða vefinn

Fuglársins.is 

Dögg hjá webdew.is gerði vefinn fyrir kosningu um fugl ársins

Forsíða Lestrarsetur Rannveigar Lund.

Lestrarsetur

  • 22. janúar 201828. ágúst 2019
  • by Dögg Matthíasdóttir

Rannveig Lund starfrækir Lestrarsetur Rannveigar Lund og þar gefur hún út bækur og annað lestrarkennsluefni.

Auk þess að gefa út prentaðar bækur til lestrarkennslu hefur hún rannsakað og þróað lestrarkennsluaðferðina af skjá í bók.
Ein mikilvægasta þörfin sem hún hafði því fyrir vefinn var að miðla skjáefni til lestrarkennslu fyrir allar gerðir snjalltækja, bæði ipada og annara spjaldtölva. Því fórum við í gegnum þarfagreiningu og völdum hentugar lausnir.

Markhópur hennar eru skólar og kennarar og því þurfti lestrarsetrið að bjóða upp á pöntunarsíðu, án þess að greiðsla færi fram gegnum vefinn. Því settum við upp pöntunarsíðu sem tekur á móti öllum upplýsingum til þess að senda viðskiptavinum reikning fyrir viðskiptunum.

webdew annaðist

  • Vefstefnumótun
  • Vefsíðugerð
  • Hlutverk og markmið skilgreind
  • Veigamestu verkefni vefsins skilgreind
  • Val tæknilegra viðbóta
  • Útlit, litir og grafík valin
  • Myndvinnsla
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum

Skoða vefinn

http://lrl.is/

Culina.is forsíða

Culina.is

  • 2. júní 201627. ágúst 2019
  • by Dögg Matthíasdóttir

Culina.is endurskoðaður

Ég tel mikilvægt að taka vefi reglulega til endurskoðunar, ekki ólíkt því að fara með bílinn sinn í skoðun á hverju ári.

Um daginn kom Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Culina að máli við mig og langaði til að gera breytingar á vefnum. Hennar aðaláhersla var að gera meira úr veisluþjónustunni á vefnum.

Ég byrjaði á skoða umferðina með greiningartólinu Google Analytics. Það er mjög mikilvægt að átta sig á því þegar um endurskoðun vefs er að ræða að vita hvaðan gestirnir koma, hvaða síður skoða þeir (og hverjar skoða þeir ekki), hve miklum tíma eyða þeir á vefnum og hvaða tæki voru þeir að nota þegar þeir komu í heimsókn. Það er margt fleira sem hægt er að skoða með greiningartólinu og auðvelt að gleyma sér þér.

Auk þess:

  • Efni rýnt og endurskoðað
  • Nýtt efni skrifað
  • Nýtt myndefni
  • Tenglar yfirfarnir
  • Nýtt heildarútlit
  • Ný forsíða með áherslubreytingum
Culina.is - forsíða
Culina.is - Veisluþjónusta
Culina.is - Ljúfmeti
Culina.is - Hafa samband
Culina.is - Um Culina

Culina.is 1.0

Verið var að vinna nýjan vef fyrir Culina 2014 þegar leiðir okkar Dóru lágu saman. Þá var sett upp nýtt kerfi en allt efni var afritað af gamla vefnum. Hlutverk og markmið vefsins voru endurskilgreind. Nýtt veftré sett upp og efni endurraðað byggt á þeim skilgreindu leitarorðum sem ákveðið var að sækjast eftir. Nýtt efni fyrir nýjar vörur var skrifað.

webdew annaðist

  • Grisjun efnis
  • Skilgreining hlutverks og markhópa
  • Textaskrif
  • Myndvinnsla
  • Prófarkalestur
  • Uppsetning á efni
  • Vefráðgjöf
  • Upplýsingaarkitektúr

Skoða vefinn

http://culina.is/

Húsamálarinn forsíða

Húsamálarinn.is

  • 1. júní 20161. júní 2016
  • by Dögg Matthíasdóttir

Þegar Húsamálarinn leitaði til webdew.is var hann með síðu á Facebook.

Mótuð var vefstefna, leitarorð skilgreind, hlutverk og helstu verkefni vefsins og farið yfir stefnumótun fyrir samfélagsmiðla. Ímynd og blæbrigði vefsins voru skilgreind. Veftexti var skrifaður m.t.t. leitarvélabestunar. Myndir voru leitarvélabestaðar.

Valið var hýsingaraðili, vefumsjónarkerfi, útlit og viðbætur við hæfi. Stofnuð voru ný netföng og vefpóstur virkjaður.

Húsamálarinn.is - forsíða
Húsamálarinn.is - Verkin
Húsamálarinn.is - Þjónustan
Húsamálarinn.is - Um okkur
Húsamálarinn.is - Hafa samband

webdew annaðist

  • Vefstefnumótun
  • Hlutverk og blæbrigði vefs skilgreind
  • Veigamikil verkefni vefsins skilgreind
  • Val á vefumsjónarkerfi, útliti og viðbótum
  • Textaskrif m.t.t. leitarvélabestunar
  • Myndvinnsla
  • Uppsetning hjá hýsingaraðila
  • Ný netföng stofnuð og sett upp
  • Efni sett inn í vefumsjónarkerfið
  • Prófarkalestur
  • Prófanir eftir uppsetningu

Skoða vefinn

http://husamalarinn.is

Lestur.is forsíða

Lestur.is

  • 1. júní 20161. júní 2016
  • by Dögg Matthíasdóttir

Auður B. Kristinsdóttir er eigandi Lestrarmiðstöðvar í Mjódd og heldur úti vefnum lestur.is. Auður er kjarnakona og vill gera hlutina á eigin spýtur.

Lestrarmiðstöð í Mjódd býður upp á viðurkenndar greiningar á lesblindu, námskeið og einkatíma fyrir þá sem eru með leshömlun. Þá gefur hún út og selur bókstafaspil sem hjálpa börnum að læra bókstafina og leggja á minnið.

Allt efni á nýja vefnum var endurskoðað frá því sem áður var, endurskrifað af Auði en með leitarvélabestun í huga.

Lestur.is - Forsíða
Lestur.is - Bókstafaspilin
Lestur.is - Lestur
Lestur.is - Ertu með leshömlun?
Lestur.is - Um okkur

webdew annaðist:

  • Samskipti við nýjan hýsingaraðila
  • Uppsetningu vefumsjónarkerfis
  • Val á útliti og viðbótum
  • Uppsetningu á tæknilegri virkni s.s. pöntunar og fyrirspurnarform
  • Leitarvélabestun mynda
  • Kennslu á nýja vefumsjónarkerfið
  • Tæknilegar stillingar fyrir tölvupóst í tölvu og síma

Allt annað sá Auður um sjálf.

Skoða vefinn

http://lestur.is

Lóðasláttur.is forsíða

Lóðasláttur

  • 1. júní 20161. júní 2016
  • by Dögg Matthíasdóttir

Lóðasláttur fékk nýjan vef í maí 2015, rétt mátulega fyrir vertíð sumarsins.

Lóðasláttur er rótgróið fjölskyldufyrirtæki, upphaflega stofnað til þess að verða sér út um aukatekjur, en hefur vaxið fiskur um hrygg á hverju starfsári.

Lóðasláttur valdi það að vera í fastri áskrift að vefstjóra til leigu og byrjað var á að búa til nýjan vef. Eftir að vefurinn var tilbúinn og sjósettur, var ráðist í markaðsherferð á netinu. Skilgreind voru leitarorð og textaauglýsingar hjá Google keyptar með þeim fyrir hóflega fjárhagsáætlun.

Samhliða auglýsingaherferðinni var gert átak í samfélagmiðlum.

Lóðasláttur - Forsíða
Lóðasláttur - Garðsláttur
Lóðasláttur - Þjónusta
Lóðasláttur - Um okkur
Lóðasláttur - Verð
Lóðasláttur - Hafa samband

webdew annaðist

  • Vefstefnumótun
  • Hlutverk og markmið skilgreind
  • Veigamestu verkefni vefsins skilgreind
  • Textaskrif fyrir vefinn
  • Útlit, litir og grafík valin
  • Myndvinnsla
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Samskipti við hýsingaraðila
  • Prófanir á virkni eftir opnun
  • Markaðsherferð á netinu 

Skoða vefinn

http://lodaslattur.is

Offroad Iceland.is forsíða

Offroad Iceland.is

  • 1. júní 201628. ágúst 2019
  • by Dögg Matthíasdóttir

Nýtt vörumerki (e. Rebranding) – Offroad Iceland

Í apríl 2015 var tekin ný stefna í markaðssetningu farþegaferða á torfærubílnum og vörumerkið Offroad Iceland tók yfir. Þessu samhliða voru gerðar breytingar á vefnum, nýtt markaðsefni útbúið og efni fyrir síður samfélagsmiðla.

Þá kom Offroad Iceland í fasta áskrift af vefstjóra til leigu og því samhliða sá webdew um markaðssetningu á netinu og samfélagsmiðla.

OffroadIceland forsíða

Offroad Reykjavík

webdew gerði nýjan vef fyrir Off Road Reykjavík frá grunni í maí 2014.

Vefurinn þurfti að vera á tveimur tungumálum, íslensku og ensku, því auk þess að vera keppnislið til Íslandsmeistara í torfæru þá býður Off Road Reykjavík upp á ótrúlega magnaðar ævintýraferðir á torfærubílunum og markhópurinn eru erlendir ferðamenn.

Útlit á Facebook síðu var samræmt við nýja ímynd og Youtube rás var opnuð. Þá var ákveðið að nota Instagram fyrir myndir.

webdew annaðist

  • Ímyndarsköpun
  • Textagerð
  • Myndvinnsla
  • Myndbandavinnsla
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Vefráðgjöf
  • Upplýsingaarkitektúr
  • Samfélagsmiðlar
  • Verkefnastýring

Skoða vefinn

http://offroadiceland.is/

Reisum.is forsíða

Reisum.is

  • 31. maí 2016
  • by Dögg Matthíasdóttir

Reisum byggingaverktaki leitaði til webdew.is og átti þá gamlan úreldan vef, með mörgum brotnum hlekkjum.

Mótuð var vefstefna, blæbrigði, hlutverk og markmið skilgreind sem og veigamestu verkefni vefsins. Efnið af gamla vefnum var grisjað, endurbætt með nýju og leitarvélabestað. Nýtt efni skrifað miðað við skilgreind markmið og leitarorð. Myndir og teikningar voru leitarvélabestaðar.

Valin voru útlit og viðbætur og nýr vefur settur upp í WordPress vefumsjónarkerfinu. Webdew.is annaðist uppsetningu efnis á nýja vefnum og í lok mars var hann svo settur í loftið.

Svörun við nýja vefnum var mjög góð, strax á fyrstu dögunum bárust fjölmargar fyrirspurnir um vörur og þjónustu gegnum vefinn, viðbrögð viðskiptavina létu því ekki á sér standa.

webdew annaðist

  • Vefstefnumótun
  • Endurskoðun og grisjun eldra efnis
  • Hlutverk og markmið skilgreind
  • Veigamestu verkefni vefsins skilgreind
  • Textaskrif fyrir vefinn
  • Myndvinnsla
  • Prófarkalestur
  • Innsetning á efni
  • Samskipti við hýsingaraðila
  • Prófanir á virkni eftir opnun

Skoða vefinn

http://reisum.is

Verklagnir.is forsíða

Verklagnir.is

  • 31. maí 2016
  • by Dögg Matthíasdóttir

Pétur Bjarni hjá Verklögnum vildi sjálfur fá að vinna í nýja vefnum sínum. Birting vara í vörulista, án þess að vera með vefverslun var ein mikilvægasta krafan. Í WordPress fundum við viðbót sem uppfyllti þá kröfu.

Sjálfur annaðist hann efnisinnsetningu, efnisvinnslu og myndvinnslu á þeim tíma sem honum hentaði. Það getur verið snúið að finna tímann til að sinni vefnum og stundum er eins og maður sé alltaf á byrjunarreit. En þetta hafðist og nýr vefur opnaði haustið 2015.

webdew annaðist

  • uppsetningu
  • samskipti við hýsingaraðila,
  • upplýsingaarkitektúr
  • val á vefumsjónarkerfi, útliti og viðbótum
  • prófarkalestur
  • innri tenglar og prófanir
  • tengingar við samfélagsmiðla
  • leitarvélabestun

Skoða vefinn

Skoðaðu vefinn: verklagnir.is

„Vits er þörf þeim er víða ratar“. - Úr Hávamálum

Hafa samband

Dögg Matthíasdóttir
Hrauntunga 14
200 Kópavogur

Kennitala: 121175-3399
Vsk númer: 123500

Sími: 6901205
Netfang: dew@webdew.is

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • YouTube
© 2023 webdew | Allur réttur áskilinn |
Theme by Colorlib Powered by WordPress
 

Loading Comments...