Viðskiptavinur: Áskaffi Verkefni: Heildar endurhönnun, SEO, þýðing á ensku og áframhaldandi þróun ferða. Vefslóð: askaffi.is Áskaffi – Matur og menning í Skagafirði Áskaffi í Héðinsminni er einn af þessum stöðum sem fanga sál íslenskrar kaffihúsamenningar. Þegar kom að því að endurnýja vefinn var markmiðið skýrt: að færa þessa upplifun yfir á stafrænt form og styðja við nýja markaðssókn í ferðaþjónustu. Auður Herdís Sigurðardóttir eigandi Áskaffis er búin að vera með í undirbúningi matarferðir í Skagafirði í samstarfi við Crisscross matarferðir og Dóru Svavarsdóttur matreiðslumeistara. Haustið 2025 vissi ég af þörfinni fyrir nýjan vef fyrir Áskaffi, og í byrjun árs 2026 var svo komið að því að setja verkefnið í vinnslu. Áskorunin Gamli vefur Áskaffis var barn síns tíma; skipulagið var óljóst og hönnunin endurspeglaði ekki þá einstöku stemningu og gestrisni sem gestir upplifa í þegar þeir heimsækja Héðinsminni eða gamla bæinn á Stóru Ökrum. Auk þess að gera framsetningu á starfseminni skýrari var um að ræða kynningu á nýjung, þar sem Matarslóðir Skagafjarðar voru fyrst kynntar á Mannamóti ferðaþjónustunnar, sem fram fór í Kórnum fimmtudaginn 15. Janúar 2026. Því miður tókst mér ekki að vera þar, í fyrsta sinn í 10 ár, því Mannamót hafa verið fastur punktur í tilverunni frá því að farið var að halda þennan viðburð. Í ár átti ég ekki heimangengt, var í túr. Lausnin Verkefninu var skipt í tvo markvissa áfanga til að hámarka árangur: Áfangi 1 – Janúar ( fyrir Mannamót): Vefurinn var endurbyggður frá grunni með nýju skipulagi. Lögð var áhersla á að koma „Matarslóðum Skagafjarðar“ rækilega á framfæri með aðgengilegum upplýsingum og fallegu viðmóti sem virkar jafnt í tölvum sem símum. Áfangi 2 – Febrúar (Þýðing og sýnileiki leitarvéla): Eftir vel heppnað kynningarátak var vefurinn þýddur yfir á ensku til að mæta þörfum erlendra ferðamanna. Samhliða því var farið í ítarlega leitarvélabestun (SEO) til að tryggja að Áskaffi væri efst á blaði þegar fólk leitar að veitingum og upplifun í Skagafirði. Áfangi 3 – Í vinnslu (áframhaldandi vöruþróun): Samstarfið heldur áfram. Nú er unnið að því að fjölga ferðunum sem eru í boði á vefnum. Við hvetjum alla til að fylgjast reglulega með askaffi.is þar sem nýjar upplifanir munu líta dagsins ljós á næstunni. Menningarleg upplifun – Kaffihlaðborðið Hluti af vinnunni var að koma mikilvægum viðburðum Áskaffis á framfæri. Einn af hápunktum sumarsins er klassískt íslenskt kaffihlaðborð sem haldið er fyrstu helgina í júní, júlí, ágúst og september. Þetta er upplifun sem enginn Íslendingur á ferðalagi um Skagafjörðinn ætti að láta framhjá sér fara – sannkallað dekur fyrir bragðlaukana í dásamlegu umhverfi. Niðurstaðan Nýi vefurinn er lifandi tæki sem vex með rekstrinum. Með skýrara skipulagi, betra myndmáli og markvissri SEO vinnu, er Áskaffi nú betur í stakk búið til að taka á móti gestum hvaðanæva úr heiminum, með skýra áherslu á sérstöðu staðarins og þátttöku í Matarslóðum Skagafjarðar. Webdew annaðist Vefstefnumótun Val á þema Útlit skapað með litum og virkni Textaskrif Leitarvélabestun Vefsíðugerð með WordPress Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Þýðingar á efni vefsins Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Áskaffi.is
Eldhúsgaldrar
Eldhúsgaldar.is er uppskriftavefur þar sem Vilko og Prima krydd eru vörumerkin á bak við fjölbreyttar uppskriftir fyrir alla fjölskylduna.
Kjötsmiðjan 30 ára
Kjötsmiðjan fagnaði 30 ára afmæli árið 2020 og af því tilefni var ráðist í að búa til nýjan vef. Kjötsmiðjan er kjötvinnsla en starfrækir einnig kjötbúð að Fosshálsi 27 í Reykjavík. Markmið vefsins voru að gera viðskiptavinum betur kleift að panta vörur úr hinu fjölbreytta og glæsilega vöruúrvali sem Kjötsmiðjan býður uppá. Einnig þurfti að bregðast hratt við á þeim tíma þegar vefurinn var í vinnslu, þá skall á farsótt og í snarhasti var viðskiptavinum boðið upp á heimkeyrslu og snertilausar afhendingar. Starfsfólk Kjötsmiðjunnar tók svo við vefnum í rekstur og nýtir hann sem hjartað í sinni markaðssetningu á netinu og á samfélagsmiðlum. Að auki hafa þau nýtt sér Dögg hjá webdew sem vefstjóra til leigu enda frábær sveigjanleiki fólginn í því að geta einbeitt sér að gæðavörum og góðri þjónustu við viðskiptavini sína og fá fagmanneskju til þess að sjá um að uppfæra vefinn. Það sparar bæði tíma og fjármuni til lengri tíma litið. webdew annaðist Vefstefnumótun Vefsíðugerð Hlutverk og markmið skilgreind Veigamestu verkefni vefsins skilgreind Val tæknilegra viðbóta Útlit, litir og grafík valin Myndvinnsla Leitarvélabestun Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Kjötsmiðjan.is
Grimma bókhaldsþjónusta
Bókhalds- og fasteignafélagið Núll tók til starfa í lok árs 2016 og árið 2021 var komið að nafnabreytingu, þá varð til Grimma bókhaldsþjónusta. Grimma bókhaldsþjónusta annast alla alhliða bókhaldsþjónustu, virðisaukaskattskil, launaútreikninga og -greiðslur og veitir jafnt einstaklingum, verktökum, félagasamtökum og fyrirtækjum persónulega bókhaldsþjónustu. Halldóra Ósk Ólafsdóttir er löggildur bókari og það er fínt að geta einbeitt sér að þeirri vinnu fyrir viðskiptavini sína, flestum finnst þægilegt að losna við bókhaldsvinnuna og þurfa aðeins að afhenda fylgiskjölin til bókarans. Með breytingunni var leitast við að skapa nýja ímynd, fanga kjarnann í þeirri þjónustu sem verið er að veita og miðla henni til núverandi og nýrra viðskiptavina. webdew annaðist Vefstefnumótun Vefsíðugerð Hlutverk og markmið skilgreind Veigamestu verkefni vefsins skilgreind Val tæknilegra viðbóta Útlit, litir og grafík valin Ljósmyndun Myndvinnsla Leitarvélabestun Prófarkalestur Innsetning á efni Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn grimma.is
Culina.is
Ég tel mikilvægt að taka vefi reglulega til endurskoðunar, ekki ólíkt því að fara með bílinn sinn í skoðun á hverju ári. Um daginn kom Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Culina að máli við mig og langaði til að gera breytingar á vefnum. Hennar aðaláhersla var að gera meira úr veisluþjónustunni á vefnum. Ég byrjaði á skoða umferðina með greiningartólinu Google Analytics. Það er mjög mikilvægt að átta sig á því þegar um endurskoðun vefs er að ræða að vita hvaðan gestirnir koma, hvaða síður skoða þeir (og hverjar skoða þeir ekki), hve miklum tíma eyða þeir á vefnum og hvaða tæki voru þeir að nota þegar þeir komu í heimsókn. Það er margt fleira sem hægt er að skoða með greiningartólinu og auðvelt að gleyma sér þér. Culina.is 2.0 Efni rýnt og endurskoðað Nýtt efni skrifað Nýtt myndefni Tenglar yfirfarnir Nýtt heildarútlit Ný forsíða með áherslubreytingum Culina.is 1.0 Verið var að vinna nýjan vef fyrir Culina 2014 þegar leiðir okkar Dóru lágu saman. Þá var sett upp nýtt kerfi en allt efni var afritað af gamla vefnum. Hlutverk og markmið vefsins voru endurskilgreind. Nýtt veftré sett upp og efni endurraðað byggt á þeim skilgreindu leitarorðum sem ákveðið var að sækjast eftir. Nýtt efni fyrir nýjar vörur var skrifað. webdew annaðist Grisjun efnis Skilgreining hlutverks og markhópa Textaskrif Myndvinnsla Prófarkalestur Uppsetning á efni Vefráðgjöf Upplýsingaarkitektúr Skoða vefinn Culina.is