Viðskiptavinur: Slow Food á Íslandi Verkefni: Hönnun og smíði vefs frá grunni, upplýsingaarkitektúr, efnisuppsetning, SEO/GEO og umsjón. Vefslóð: stockfishjourney.is Ferðalag skreiðar og harðfisks um heiminn Skreið og harðfiskur eru meðal elstu og mikilvægustu útflutningsafurða norðurslóða – menningararfur sem hefur tengt saman ólíkar þjóðir og matarhefðir í gegnum aldirnar. Þegar kom að því að setja á laggirnar farandsýninguna Stockfish Journey fyrir Slow Food á Íslandi og erlenda samstarfsaðila, var markmiðið skýrt: að skapa lifandi stafrænan vettvang sem styður við sýninguna, miðlar sögunni og safnar saman matarhefðum á einum stað. Stockfish Journey er metnaðarfullt alþjóðlegt samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Slow Food Bergen, Slow Food Mearra-Sámi í Noregi og Kålrotsakademien í Svíþjóð, auk fjölda samstarfsaðila á Ítalíu og í Nígeríu. Farandsýningin var frumsýnd með glæsibrag á alþjóðlegu matvæla- og menningarhátíðinni Terra Madre – Salone del Gusto í Tórínó á Ítalíu í lok september 2026, þar sem um 45–50 þúsund gestir heimsóttu skreiðarhjallinn. Ég fékk það skemmtilega tækifæri að fara sjálf með til Tórínó og vera viðstödd opnunina og upplifa stemninguna á staðnum. Hönnuður sýningarinnar er listamaðurinn Elín Ringsted. Áskorunin Verkefnið snerist um að byggja upp nýjan vef frá grunni á skömmum tíma fyrir opnun sýningarinnar í Tórínó. Áskorunin fólst fyrst og fremst í því að flétta saman miklu magni af sögulegu efni og fróðleik frá mörgum löndum og ólíkum samstarfsaðilum í eina skýra og aðgengilega heild. Vefurinn þurfti að virka jafnt sem upplýsingaveita fyrir gesti sýningarinnar á staðnum – sem skönnuðu sig inn á efnið úr símanum – og sem varanlegur gagnabanki um sögu, menningu og matargerð tengda skreið og harðfiski. Lausnin Lykillinn að vel heppnuðum vef var skýr upplýsingaarkitektúr og markviss framsetning á efninu: Saga og menning eftir löndum: Sögulega efninu var skipt skipulega niður eftir löndum – Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Ítalíu. Þannig geta gestir kynnt sér sérstöðu hvers svæðis fyrir sig, allt frá verkun og verslun í norðri til rótgróinna matreiðsluhefða í suðri. Sameiginlegur þráður í uppskriftum: Á vefnum safnast saman uppskriftir frá þátttökulöndunum. Sérstök áhersla var lögð á að tengja þær saman og draga fram sameiginlega þráðinn í því hvernig ólíkar þjóðir nýta þetta sama hráefni í sinni matargerð. Snjalltækjavænt viðmót fyrir sýningargesti: Vefurinn var hannaður með hraða og læsileika í fyrirrúmi svo gestir á farandsýningunni gætu auðveldlega nálgast sögur og uppskriftir í snjallsímum á meðan þeir skoðuðu sýninguna. Á leið á heimsminjaskrá UNESCO Það sem gerir Stockfish Journey alveg einstakt er stærra samhengið sem verkefnið tilheyrir. Farandsýningin og vefurinn eru hluti af alþjóðlegu samstarfi Íslands, Noregs, Ítalíu og Nígeríu um umsókn til UNESCO um að hefðir, þekking og menningararfur tengdur skreið og harðfiski verði skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns. Vefurinn gegnir þannig mikilvægu hlutverki í að varðveita þessa lifandi þekkingu og miðla henni áfram á meðan sýningin heldur ferð sinni áfram um Ítalíu og Norðurlöndin. Niðurstaðan Úr varð vandaður, lifandi og fræðandi vefur sem styður fullkomlega við farandsýninguna og vex með henni á hverjum áfangastað. Með skýrri flokkun efnis, grípandi frásögnum og markvissri leitarvélabestun (SEO og GEO) er stockfishjourney.is orðinn miðlægur vettvangur fyrir sögu og matarmenningu skreiðarinnar – og mikilvægt skref í átt að viðurkenningu UNESCO. Webdew annaðist Vefstefnumótun og upplýsingaarkitektúr Val á þema og uppsetning í WordPress Útlit skapað með litum og virkni Efnisskipulag, textavinnsla og prófarkalestur Uppsetning á sögulegu efni og uppskriftum Leitarvélabestun (SEO) og bestun fyrir gervigreindarleit (GEO) Prófanir á virkni og hraða á öllum snjalltækjum Vefstjóri til leigu og áframhaldandi þróun Skoða vefinn StockfishJourney.is
Grimma bókhaldsþjónusta
2026 Ný útgáfa – grimma.is Tímarnir breytast og mennirnir með, en málið er að vefir þurfa líka að breytast með tímanum. Fyrri hluta árs 2026 fékk grimma.is yfirhalningu. Leitarvélabestun (SEO) endurskoðuð og styrkt Gervigreindarbestun (GEO) bætt við Vefurinn endursmíðaður í Elementor vefsíðusmiðnum Efnisskrif voru styrkt Efni einfaldað með það að markmiði að gera það tímalausara Vefurinn þjónar sama hlutverki og hann gerði áður en getur kannski þjónað því enn betur eftir þessa yfirhalningu. 2022 Bókhalds- og fasteignafélagið Núll tók til starfa í lok árs 2016 og árið 2021 var komið að nafnabreytingu, þá varð til Grimma bókhaldsþjónusta. Grimma bókhaldsþjónusta annast alla alhliða bókhaldsþjónustu, virðisaukaskattskil, launaútreikninga og -greiðslur og veitir jafnt einstaklingum, verktökum, félagasamtökum og fyrirtækjum persónulega bókhaldsþjónustu. Halldóra Ósk Ólafsdóttir er löggildur bókari og það er fínt að geta einbeitt sér að þeirri vinnu fyrir viðskiptavini sína, flestum finnst þægilegt að losna við bókhaldsvinnuna og þurfa aðeins að afhenda fylgiskjölin til bókarans. Með breytingunni var leitast við að skapa nýja ímynd, fanga kjarnann í þeirri þjónustu sem verið er að veita og miðla henni til núverandi og nýrra viðskiptavina. webdew annaðist Vefstefnumótun Vefsíðugerð Hlutverk og markmið skilgreind Veigamestu verkefni vefsins skilgreind Val tæknilegra viðbóta Útlit, litir og grafík valin Ljósmyndun Myndvinnsla Leitarvélabestun Prófarkalestur Innsetning á efni Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn grimma.is
Aðalbraut.is
Njáll Gunnlaugsson ökukennari er með vefinn Aðalbraut.is fyrir starfssemi hans sem ökukennari. Þegar Njáll leitaði eftir því að fá nýjan vef, þá var gamli svo úreltur og botnfrosinn að það kom á daginn að það varð töluverð handavinna að ná af honum nýtilegum hlutum eins og skýringarmyndir og myndbönd. En það er bara vinna. Þrátt fyrir að Aðalbraut sé vefur um ökukennslu þá hefur Njáll sérhæft sig í ökukennslu á bifhjólum og mér fannst þurfa að endurspegla það betur. Mótorhjólaprófin eða bifhjólaprófin skiptast líka niður í nokkra stærðarflokka og skellinöðrupróf er leitarorð út af fyrir sig og efni vefsins og texti verður að taka mið af því. Njáll Gunnlaugsson ökukennari er ekki bara ökukennari, heldur er hann einnig rithöfundur. Því þótti mér vanta að koma ritstörfum hans betur á framfæri, m.a. Með myndrænni framsetningu á bókakápum og tenglum þar sem hægt væri að kaupa bækur hans í vefverslunum bókaverslana. Þá hefur Njáll verið öflugur talsmaður og í forsvari Snigla, landssamtökum bifhjólamanna og því bæði ljúft og skylt að koma því víð að vera með áberandi tengil yfir á vef Sniglanna. Nýr vefur var settur upp í WordPress vefumsjónarkerfinu, valið þema og litir útfærðir í samræmi við lógó Aðalbrautar. Eins og áður sagði náðist að nýta nokkrar myndir og myndbönd af gamla vefnum. Það sem þurfti að taka af myndum var þó eitthvað. Þær tók Dögg, einn bíltúr meðan yfirstandandi tími var í gangi með ökukennaranum undir stýri skilaði myndum bæði af honum og ökunemum að keyra bifhjól í umferð. Aðrar myndir og myndbönd voru tekin á kennslustað, akstursbrautinni við Álfhellu. Bæði keilusvig og ökunemi að klæða sig í öryggisfatnað eru sterkt myndmál sem endurspegla starfsemina. webdew annaðist Efnisskrif Vefstefnumótun Val á þema Útlit skapað með litum og virkni Leitarvélabestun Vefsíðugerð Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Ljósmyndun og myndbönd Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Aðalbraut.is
Adastratravel.com
Nýr vefur adastratravel.com var settur í loftið í sumar eftir fulla meðgöngu. Ad Astra er latína og merkir til stjarnanna og á bak við Ad Astra Travel nafnið er persónuleg saga. Ad Astra Travel er ferðaskrifstofa sem selur sérhannaðar ferðir á Íslandi og markmið vefsins er að ná til rétta markhópsins, betur borgandi erlendra ferðamanna sem vilja fá fulla þjónustu á sínum ferðum. Ferðamennirnir sem verið er að höfða til gista á glæsilegustu hótelum á Íslandi, ferðast með stæl á þyrlum, einkaþotum og glæsikerrum, fá reynda leiðsögumenn með sér í ferðirnar og þjónustuaðilarnir þegar kemur að afþreyingu eru handvaldir og traustsins verðir þegar kemur að því að veita góða þjónustu og tryggja öryggi ferðamanna í hvívetna. Mikill metnaður og vinna var lögð í framsetningu efnis á vefnum, en allur texti vefsins er á ensku, með það að markmiði að koma réttum skilaboðum til rétta markhópsins. Þannig er verið að reyna að sneiða hjá þeim fyrirspurnum sem eru ólíklegar til þess að leiða til viðskipta og skipulagningar ferða sem ekki verður svo af. Vörumerki Ad Astra Travel hannaði Sveinbjörn Pálsson grafískur hönnuður, https://www.sveinbjorn.com/. Við val á útliti vefsins og litanotkun var stuðst við útlit vörumerkisins, til þess að ná fram samræmdum tón. Margar ljósmyndir og myndband á forsíðu myndaði Sigurður Stefnisson sem einnig starfar sem leiðsögumaður, meðal annara fyrir Ad Astra Travel. Ljósmyndir eru frá þjónustuaðilum og samstarfsaðilum eins og Bláa Lóninu, Deplar Farm by Eleven Experience, Kerlingarfjöll Highland Base og Dalur Luxury. Þá eru á vefnum ljósmyndir frá ferðaskrifstofunni Ad Astra Travel sem og ljósmyndir frá leiðsögumönnum. Ferðaskrifstofan Ad Astra Travel er í eigu Kristínar Birnu Óðinsdóttur sem státar af áralangri reynslu í sölu lúxusferða til Íslands og leggur metnað í gæði og góða þjónustu með öryggi ferðamanna að leiðarljósi. webdew annaðist Efnisskrif Ljósmyndun Vefstefnumótun Val á þema Útlit skapað með litum og virkni Leitarvélabestun Vefsíðugerð Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Adastratravel.com
Keyrt og kokkað.is
Rögnvaldur Guðbrandsson er ökuleiðsögumaður og matreiðslumeistari og fyrir hann vann Dögg Matthíasdóttir viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur hjá webdew.is einfaldan vef í janúar 2024. Rögnvaldur Guðbrandsson útskrifaðist sem matreiðslumeistari árið 1989. Gegnum tíðina hefur hann starfað á fjölmörgum af betri veitingahúsum landsins, Hótel Holt, Jónatan Livingstone mávur, Hótel Stykkishólmur, Rub 23 svo dæmi séu nefnd. Rögnvaldur Guðbrandsson hefur verið sjálfstætt starfandi ökuleiðsögumaður frá árinu 2015. Sem ökuleiðsögumaður starfar hann fyrir vandaðar og viðurkenndar ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur. Rögnvaldur getur starfað sem matreiðslumeistari eða ökuleiðsögumaður eða hvort tveggja í senn. Með Rögnvaldi á Raminum geta að hámarki verið 4 farþegar í dagsferð og veislu slegið upp á áfangastað. Ef um stærri hópa er að ræða, er veislan tilbúin þegar hópurinn kemur á áfangastað, Rögnvaldur hittir þá hópinn á fyrirfram ákveðnum stað. Ljósmyndir tók Dögg í ferð með Rögnvaldi í Kerlingafjöll, þar sem hann sló upp veislu, en á vefinn voru einning notaðar ljósmyndir sem Rögnvaldur hefur sjálfur tekið á sínum ferðum. Til þess að skrifa efni fyrir vefinn, settumst við Röggi nokkrum sinnum niður yfir kaffibolla, til þess að ná niður á blað einhverjum punktum um feril hans sem ökuleiðsögumanns og matreiðslumeistara hingað til. Í framhaldinu var þjónustan mótuð og samhliða vinnslu við vefinn fékk Röggi líka ráðgjöf varðandi samfélagsmiðla. webdew annaðist Efnisskrif Ljósmyndun Vefstefnumótun Val á þema Útlit skapað með litum og virkni Leitarvélabestun Vefsíðugerð Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Keyrtogkokkad.is
Eldhúsgaldrar
Eldhúsgaldar.is er uppskriftavefur þar sem Vilko og Prima krydd eru vörumerkin á bak við fjölbreyttar uppskriftir fyrir alla fjölskylduna.
Andrými.is
Snjólaug Ólafsdóttir er konan á bak við Andrými sjálfbærnisetur. Þegar hún kom til mín 2018 var Andrými ráðgjöf. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Við höfum unnið í ímyndarsköpun og sérstöðu Snjólaugar, endurskipulagt vefinn hennar frá grunni, svo hann sé að endurspegla þá þjónustu sem hún veitir. Sett niður stefna, markmið og áætlun um birtingu og tíðni pistla og flæðis á milli vefs, samfélagsmiðla og tíðni póstsendinga með markaðsherferð með tölvupósti. webdew annaðist Vefstefnumótun Vefsíðugerð Hlutverk og markmið skilgreind Veigamestu verkefni vefsins skilgreind Val tæknilegra viðbóta Útlit, litir og grafík valin Myndvinnsla Prófarkalestur Innsetning á efni Leitarvélabestun Markaðssetning á netinu Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Andrými.is