Viðskiptavinur: Áskaffi Verkefni: Heildar endurhönnun, SEO, þýðing á ensku og áframhaldandi þróun ferða. Vefslóð: askaffi.is Áskaffi – Matur og menning í Skagafirði Áskaffi í Héðinsminni er einn af þessum stöðum sem fanga sál íslenskrar kaffihúsamenningar. Þegar kom að því að endurnýja vefinn var markmiðið skýrt: að færa þessa upplifun yfir á stafrænt form og styðja við nýja markaðssókn í ferðaþjónustu. Auður Herdís Sigurðardóttir eigandi Áskaffis er búin að vera með í undirbúningi matarferðir í Skagafirði í samstarfi við Crisscross matarferðir og Dóru Svavarsdóttur matreiðslumeistara. Haustið 2025 vissi ég af þörfinni fyrir nýjan vef fyrir Áskaffi, og í byrjun árs 2026 var svo komið að því að setja verkefnið í vinnslu. Áskorunin Gamli vefur Áskaffis var barn síns tíma; skipulagið var óljóst og hönnunin endurspeglaði ekki þá einstöku stemningu og gestrisni sem gestir upplifa í þegar þeir heimsækja Héðinsminni eða gamla bæinn á Stóru Ökrum. Auk þess að gera framsetningu á starfseminni skýrari var um að ræða kynningu á nýjung, þar sem Matarslóðir Skagafjarðar voru fyrst kynntar á Mannamóti ferðaþjónustunnar, sem fram fór í Kórnum fimmtudaginn 15. Janúar 2026. Því miður tókst mér ekki að vera þar, í fyrsta sinn í 10 ár, því Mannamót hafa verið fastur punktur í tilverunni frá því að farið var að halda þennan viðburð. Í ár átti ég ekki heimangengt, var í túr. Lausnin Verkefninu var skipt í tvo markvissa áfanga til að hámarka árangur: Áfangi 1 – Janúar ( fyrir Mannamót): Vefurinn var endurbyggður frá grunni með nýju skipulagi. Lögð var áhersla á að koma „Matarslóðum Skagafjarðar“ rækilega á framfæri með aðgengilegum upplýsingum og fallegu viðmóti sem virkar jafnt í tölvum sem símum. Áfangi 2 – Febrúar (Þýðing og sýnileiki leitarvéla): Eftir vel heppnað kynningarátak var vefurinn þýddur yfir á ensku til að mæta þörfum erlendra ferðamanna. Samhliða því var farið í ítarlega leitarvélabestun (SEO) til að tryggja að Áskaffi væri efst á blaði þegar fólk leitar að veitingum og upplifun í Skagafirði. Áfangi 3 – Í vinnslu (áframhaldandi vöruþróun): Samstarfið heldur áfram. Nú er unnið að því að fjölga ferðunum sem eru í boði á vefnum. Við hvetjum alla til að fylgjast reglulega með askaffi.is þar sem nýjar upplifanir munu líta dagsins ljós á næstunni. Menningarleg upplifun – Kaffihlaðborðið Hluti af vinnunni var að koma mikilvægum viðburðum Áskaffis á framfæri. Einn af hápunktum sumarsins er klassískt íslenskt kaffihlaðborð sem haldið er fyrstu helgina í júní, júlí, ágúst og september. Þetta er upplifun sem enginn Íslendingur á ferðalagi um Skagafjörðinn ætti að láta framhjá sér fara – sannkallað dekur fyrir bragðlaukana í dásamlegu umhverfi. Niðurstaðan Nýi vefurinn er lifandi tæki sem vex með rekstrinum. Með skýrara skipulagi, betra myndmáli og markvissri SEO vinnu, er Áskaffi nú betur í stakk búið til að taka á móti gestum hvaðanæva úr heiminum, með skýra áherslu á sérstöðu staðarins og þátttöku í Matarslóðum Skagafjarðar. Webdew annaðist Vefstefnumótun Val á þema Útlit skapað með litum og virkni Textaskrif Leitarvélabestun Vefsíðugerð með WordPress Prófarkalestur Innsetning á efni Vefstjóri til leigu Þýðingar á efni vefsins Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum Skoða vefinn Áskaffi.is
Íslenskir staðlar – Staðlaráð Íslands
Gegnum Hoobla, samfélag sjálfstætt starfandi sérfræðinga, fékk ég það tækifæri á dögunum að vinna frábært verkefni fyrir Íslenska staðla – Staðlaráð Íslands. Verkefnið var fólgið í því að setja saman markaðsáætlun fyrir þau. Aðaláherslan var að sjálfsögðu lögð á stafrænar markaðsaðgerðir og fólgið í því að skipuleggja hvernig þau geta best nýtt tíma sinn og fjármuni til þess að skila þeim betri vitund um vörumerkið þeirra. Við tókum góðan kynningarfund, svo fékk ég tíma til að afla gagna, skoða vefinn þeirra, aðra vefi og snertifleti á samfélagsmiðlum. Að loknum skilafundi verður gaman að fylgjast með þeim í framhaldinu, hvernig til tekst. Þau eru strax búin að teygja sig í ávextina sem hengju lágt á trénu eins og að samræma heiti og útlit á samfélagsmiðlunum. Vel gert. webdew annaðist Þjónustuskoðun á vef Vefstefnumótun Samfélagsmiðla Skoða vefinn Íslenskir staðlar – Staðlaráð Íslands