Viðskiptavinur: Slow Food á Íslandi Verkefni: Hönnun og smíði vefs frá grunni, upplýsingaarkitektúr, efnisuppsetning, SEO/GEO og umsjón. Vefslóð: stockfishjourney.is Ferðalag skreiðar og harðfisks um heiminn Skreið og harðfiskur eru meðal elstu og mikilvægustu útflutningsafurða norðurslóða – menningararfur sem hefur tengt saman ólíkar þjóðir og matarhefðir í gegnum aldirnar. Þegar kom að því að setja […]
Grimma bókhaldsþjónusta
2026 Ný útgáfa – grimma.is Tímarnir breytast og mennirnir með, en málið er að vefir þurfa líka að breytast með tímanum. Fyrri hluta árs 2026 fékk grimma.is yfirhalningu. Leitarvélabestun (SEO) endurskoðuð og styrkt Gervigreindarbestun (GEO) bætt við Vefurinn endursmíðaður í Elementor vefsíðusmiðnum Efnisskrif voru styrkt Efni einfaldað með það að markmiði að gera það tímalausara […]
Áskaffi.is
Viðskiptavinur: Áskaffi Verkefni: Heildar endurhönnun, SEO, þýðing á ensku og áframhaldandi þróun ferða. Vefslóð: askaffi.is Áskaffi – Matur og menning í Skagafirði Áskaffi í Héðinsminni er einn af þessum stöðum sem fanga sál íslenskrar kaffihúsamenningar. Þegar kom að því að endurnýja vefinn var markmiðið skýrt: að færa þessa upplifun yfir á stafrænt form og styðja […]
Fornhjól.is
Fornhjól.is er vefur Fornhjólafélagisins sem gegnir dýrmætu hlutverki í að varðveita sögu vélknúinna farartækja á Íslandi. Þegar Dögg hjá Webdew.is fékk það verkefni að endurskoða vefinn þeirra, sá ég strax að þarna var falinn mikill fjársjóður af fróðleik sem þurfti að komast betur til skila. Með því að heimsækja Fornhjól.is, getur fólk fundið dýrmætar upplýsingar […]
Aðalbraut.is
Njáll Gunnlaugsson ökukennari er með vefinn Aðalbraut.is fyrir starfssemi hans sem ökukennari. Þegar Njáll leitaði eftir því að fá nýjan vef, þá var gamli svo úreltur og botnfrosinn að það kom á daginn að það varð töluverð handavinna að ná af honum nýtilegum hlutum eins og skýringarmyndir og myndbönd. En það er bara vinna. Þrátt […]
Kirkjubaer.com
Kirkjubær II tjaldsvæðið og smáhýsin er fjölskyldurekið tjaldsvæði á Kirkjubæjarklaustri. Tjaldsvæðið Kirkjubær II hóf starfsemi árið 1994. Það voru hjónin Ólöf Benediktsdóttir og Lárus Siggeirsson sem hófu reksturinn og fengu mikinn stuðning frá fjölskyldu sinni. Sonur þeirra, Benedikt Lárusson, byggði upp með foreldrum sínum og tók svo við rekstrinum árið 2009 og rekur tjaldsvæðið í […]
Nemastofa.is
Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsvettvangur atvinnulífsins um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks í atvinnulífi. Nemastofa atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunnar og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem standa að viðkomandi félögum. Ég hef unnið fyrir Nemastofu atvinnulífsins um nokkurt skeið, Ólafur Jónsson forsvarsmaður Nemastofu og nafni hans Ólafur Jónsson hjá Jons.is leituðu til […]
Sniglar.is
Sniglar, bifhjólasamtök lýðveldisins eru Samtök áhugafólks um öruggan akstur bifjhóla sem stuðla að bættri umferðarmenningu og fræðslu. Hagsmunamál bifhjólamanna eru unnin í samstarfi við fjölmarga aðila, innanlands og utan, opinbera aðila eins og Vegagerðina til að nefna dæmi. Sniglarnir standa fyrir öflugu og fjölbreyttu félagsstarfi árið um kring. Opið hús á miðvikudögum á sumin í […]
Adastratravel.com
Nýr vefur adastratravel.com var settur í loftið í sumar eftir fulla meðgöngu. Ad Astra er latína og merkir til stjarnanna og á bak við Ad Astra Travel nafnið er persónuleg saga. Ad Astra Travel er ferðaskrifstofa sem selur sérhannaðar ferðir á Íslandi og markmið vefsins er að ná til rétta markhópsins, betur borgandi erlendra ferðamanna […]
Sailing.is
Sailing.is er vefur siglingaklúbbsins Þyts en starfsemi þeirra er að Strandgötu 88 við Hafnarfjarðarhöfn.
Grænfáninn.is
Grænfáninn er verkefni Landverndar og í alþjóðlegu samstarfi við Eco Scools.
Keyrt og kokkað.is
Rögnvaldur Guðbrandsson er ökuleiðsögumaður og matreiðslumeistari og fyrir hann vann Dögg Matthíasdóttir viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur hjá webdew.is einfaldan vef í janúar 2024. Rögnvaldur Guðbrandsson útskrifaðist sem matreiðslumeistari árið 1989. Gegnum tíðina hefur hann starfað á fjölmörgum af betri veitingahúsum landsins, Hótel Holt, Jónatan Livingstone mávur, Hótel Stykkishólmur, Rub 23 svo dæmi séu nefnd. Rögnvaldur Guðbrandsson […]
Julli.is
Júlli fór af stað með Jólavef Júlla árið 1999 og hefur þar safnað saman fróðleik og skemmtun um allt á milli himins og jarðar sem tengist jólunum. Vefurinn hefur gegnum tíðina notið mikilla vinsælda hjá börnum og þeim sem starfa með börnum eins og kennurum. Vefurinn var kominn vel til ára sinna, hafði síðast verið […]
Fundur fólksins – Lýðræðishátíð unga fólksins
Ingibjörg Gréta Gísladóttir hafði samband við Dögg hjá webdew.is og var í uppnámi, ofandaði í símann því það var hreinlega allt í skralli. Viðburðir sem birtast áttu á vefnum birtust bara alls ekki. Dögg skoðaði málið og bakenda vefsins. Í bakendanum var allt orðið stútfullt af viðbótum (e. Plugins) sem enginn var lengur að nota […]
Verkvík – Sandtak
Verkvík – Sandtak er traustur samstarfsaðili stærstu fyrirtækja á Íslandi þegar kemur að mannvirkjagerð og viðhaldi fyrir innviði. Helstu verkefni Verkvíkur eru sandblástur, málmhúðun, tæringarvarnir og viðhald t.d. á raflínumöstrum og steyptum mannvirkjum. Óskað var eftir nýjum vef fyrir Verkvík – Sandtak á vormánuðum 2023, enda gamli vefurinn orðinn úr sér genginn, barn síns tíma. […]
Mýranaut
Mýranaut ehf er nautgriparæktun í eigu hjónanna Hönnu S. Kjartansdóttur kennara og Anders Larsen landbúnaðarvélvirka á Leirulæk á Mýrunum við ósa Langár. Mýranaut leggur metnað í að rækta úrvals nautgripi til kjötframleiðslu og selur gæðakjöt beint frá býli til neytenda. Gamli vefurinn var kominn vel til ára sinna og mikil þörf á að búa til […]
Gleraugnabúðin Mjódd
Gleraugnabúðin í Mjódd býður vönduð gleraugu á hagstæðu verði. Gleraugnabúðin í Mjódd annast sjónmælingar og aðstoðar þig við val á umgjörðum. Hjá Gleraugnabúðinni í Mjódd getur þú valið úr vönduðu úrvali af gleraugum fyrir alla aldurshópa og öll helstu verkefni. Gleraugnabúðin í Mjódd er með vef og Dögg hjá webdew framkvæmdi þjónustuskoðun á vefnum árið 2022. […]
Eldgos á Reykjanesi – Exclusive Travel
Exclusive Travel er ferðaþjónustufyrirtæki sem skipuleggur lúxusferðir fyrir viðskiptavini sína, sérsniðnar að þeirra þörfum. Það fór að gjósa á Reykjanesi í ágúst 2022. Af því tilefni setti Dögg hjá webdew saman færslu á vef þeirra, með öllum helstu upplýsingum varðandi öryggi og ferðalög á gosstöðvunum. webdew annaðist Efnisskrif á ensku Myndvinnsla (Ljósmyndir ©Alli Möller) Leitarvélabestun […]
Fugl ársins
Fuglavernd stóð annað árið í röð fyrir valinu á fuglí ársins. Fuglavernd leitaði til webdew til þess að útbúa vef til þess að halda utan um tilnefnda fugla, kosningastjóra og svo kosninguna sjálfa, þannig að verkefnið var sett upp í nokkrum skrefum. Vefur í WordPress varð fyrir valinu, enda það vefumsjónarkerfi með ráðandi markaðshlutdeild. Ljósmyndir […]
Eldhúsgaldrar
Eldhúsgaldar.is er uppskriftavefur þar sem Vilko og Prima krydd eru vörumerkin á bak við fjölbreyttar uppskriftir fyrir alla fjölskylduna.
Kjötsmiðjan 30 ára
Kjötsmiðjan fagnaði 30 ára afmæli árið 2020 og af því tilefni var ráðist í að búa til nýjan vef. Kjötsmiðjan er kjötvinnsla en starfrækir einnig kjötbúð að Fosshálsi 27 í Reykjavík. Markmið vefsins voru að gera viðskiptavinum betur kleift að panta vörur úr hinu fjölbreytta og glæsilega vöruúrvali sem Kjötsmiðjan býður uppá. Einnig þurfti að […]
Andrými.is
Snjólaug Ólafsdóttir er konan á bak við Andrými sjálfbærnisetur. Þegar hún kom til mín 2018 var Andrými ráðgjöf. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Við höfum unnið í ímyndarsköpun og sérstöðu Snjólaugar, endurskipulagt vefinn hennar frá grunni, svo hann sé að endurspegla þá þjónustu sem hún veitir. Sett niður stefna, markmið og áætlun […]
Culina.is
Ég tel mikilvægt að taka vefi reglulega til endurskoðunar, ekki ólíkt því að fara með bílinn sinn í skoðun á hverju ári. Um daginn kom Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Culina að máli við mig og langaði til að gera breytingar á vefnum. Hennar aðaláhersla var að gera meira úr veisluþjónustunni á vefnum. Ég byrjaði á […]
Lestur.is
Lestrarmiðstöð í Mjódd býður upp á viðurkenndar greiningar á lesblindu, námskeið og einkatíma fyrir þá sem eru með leshömlun. Þá gefur hún út og selur bókstafaspil sem hjálpa börnum að læra bókstafina og leggja á minnið. Auður B. Kristinsdóttir er eigandi Lestrarmiðstöðvar í Mjódd og heldur úti vefnum lestur.is. Auður er kjarnakona og vill gera […]