Vefstjóri til leigu

Vefstjóri til leigu

Veistu hvað þú vilt á vefnum, en vantar tímann til að gera það? Þarftu alltaf að setja þig í stellingar þegar þú þarft að fara að vinna eitthvað svona tölvustúss? Áttu alls konar efni, myndir, texta og myndbönd en hefur ekki haft tækifæri til að koma því á vefinn?

Ekkert mál, þú getur fengið þetta gert fyrir þig. Þetta snýst nefnilega ekki um forritun.

Þegar/ ef búið er að forrita fyrir þig fínan vef og svo segir forritarinn: „Gjörðu svo vel, nú getur þú sett inn efnið, þú gerir bara svona og svona, svo svona og svona…… “.

Þetta er ekkert bara. Ef þú hefur upplifað þessa þjónustu og búinn að borga stórfé fyrir vefinn, þá er vefstjóri til leigu þjónustan fyrir þig.

Stafrænn leiðtogi

Árið 2017 setti Fúnksjón fram hugleiðingu um að vefstjórinn þyrfti að vera stafrænn leiðtogi í greininni: Heyrir starf vefstjórans senn sögunni til?

Staðreyndin er sú að í þessum síkvika stafræna heimi þá erum við vefstjórarnir, stafrænu leiðtogarnir sífellt að læra eitthvað nýtt. Það koma til sögunnar ný tæki og tól í hverjum mánuði sem gera okkur kleift að vinna vinnuna okkar betur, taka betri ákvarðanir. Byggt á innsýn, gögnum um umferð um vefinn okkar, um virkni notenda á öppum og samfélagsmiðlum. Eigum við alltaf að hoppa á vagninn sem fer framhjá?

Í flestum tilfellum þegar ég starfa sem vefstjóri til leigu, þá vil ég koma því þannig fyrir að þú sért stafrænn leiðtogi fyrir þig og þinn rekstur. Ég hef mikið unnið með einyrkjum og litlum fyrirtækjum þar sem það er ekki um neinn annan að ræða til þess að vera stafrænn leiðtogi. Þess vegna býð ég uppá handleiðslu, til þess að þú getir lært á þau tæki og tól sem þarf fyrir vefumsjón og samfélagsmiðla. 

 

Vefstjóri til leigu ©webdew

Þegar ég vinn sem vefstjóri til leigu, þá er ég iðulega fengin í að sinna ákveðnum verkefnum, fyrirfram skilgreindum. Eitt af því sem vefstjóri til leigu getur gert fyrir þinn vef er að sjá um reglulegar uppfærslur, á vefumsjónarkerfi og viðbótum, passa uppá að öll virkni vefsins sé eins og hún á að vera. 

Grisjun efnis á vef er ekki síður mikilvæg en nýsköpun vefefnis. Vefurinn þinn er ekki skjalageymsla, þú átt ekki að nota vefinn sem gagnabanka fyrir ársskýrslur áratugi aftur í tímann. Lifandi vefur felur í sér að gamalt úrelt efni er tekið út, alveg eins og við gætum þess að nýtt efni sé reglulega sett inn. 

Hvernig virkar vefstjóri til leigu?

Vefstjóri til leigu sinnir vefnum og þeim verkefnum sem við skilgreinum að séu í verkahring vefstjóra. Þú hefur þá (vonandi) meiri og betri tíma til þess að einbeita þér að kjarnastarfseminni í þínum rekstri. 

Við tökum stöðuna, hvar vefurinn þinn er staddur og setjum niður áætlun um hvert við viljum fara. Við förum yfir efnið, hvað er til og hvað er hægt að nota og hvað þarf að búa til af nýju efni og hvernig því verður viðhaldið og grisjað þegar fram líða stundir.

Vefstjóri til leigu getur verið: 

Verkefni vefstjóra til leigu

Dæmi um verkefni sem vefstjóri til leigu getur sinnt fyrir þig eru: 

Hvað gerir þú svo?

Þú sinnir þínum rekstri, af þinni ástríðu og ég tek um stjórnartaumana á vefnum þínum. Við aðlögum okkur að þínum þörfum og getu, bæði fjárhagslega og tæknilega.

Hvað kostar vefsíðugerð?

Vefstjóri til leigu er með grunnverð fyrir staka klst 19.900 + vsk, en ég gerum þér tilboð og við metum hvað þarf að gera fyrir þinn vef. Góður afsláttur er veittur þegar tímarnir fara að safnast saman. Það getur borgað sig að vera í fastri áskrift, þá gerum við samning til a.m.k. þriggja mánaða og endurskoðum hann svo miðað við þarfir og árangur.

Hafðu samband

Hvaða samskiptaleið hentar þér? Settu þig í samband við mig. 

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

© 2024 Allur réttur áskilinn 

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

Hafa samband

Samfélagsmiðlar

Leita

Leitið og þér munið finna