webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

Hafa samband

Samfélagsmiðlar

Leita

Edit Template

Um webdew

Um webdew

webdew er orðaleikur (e. anagram) að vef (e.web) og Dögg (e.dew).

Hugmyndin með endurvinnsluþríhyrningnum er að það þarf ekki alltaf að byrja frá grunni, það er vel hægt að byggja á því sem áður hefur verið gert. Um leið minnir hann á sífellda endurhugsun, vefverkefni eru í örri þróun og vefur þarf sífellt að takast á við breytt umhverfi, þetta er aldrei búið.

webdew vefráðgjöf varð til þegar ég fór í fæðingarorlof og fann að mig langaði til að verja meiri tíma með dóttur minni. Í stað þess að setja hana til dagmömmu og hverfa til fyrri starfa, ákvað ég að nýta kunnáttu mína, menntun og reynslu og skapa mér atvinnu á mínum eigin forsendum. Ef ég byggi í sveit, þá finndist öllum þetta alveg sjálfsagt.

Skoðaðu verkefnin sem ég hef unnið og á blogginu geturðu lesið um hvað er að frétta hjá mér.

Markmið webdew

Settu þig í samband við webdew

Dögg Matthíasdóttir webdew
Dögg Matthíasdóttir eigandi webdew

Fyrirmyndir & forskrift

Ég aðhyllist hugmyndir Gerry McGovern um vinsælustu vefverkefnin (e. Top Task) og hef setið námskeið hjá honum þegar hann kom hingað til lands 2009. Á síðari árum hef ég einnig aðhyllst hugmyndir hans um stafræna sóun, en hann skrifaði bókina World Wide Waste, sem á ekki síst við nú á tímum gervigreindar. 

Jakob Nielsen leggur aðaláherslu á notendavænt viðmót (e. Usability 101) og þegar ég las Don’t make me think eftir Steven Krug þá var það opinberun. Þá má ekki gleyma Paul Boag hjá Boagworld.com.

Þá verð ég að geta Shari Thurow, ég hef lesið bókina sem hún gaf mér upp til agna og les pistlana hennar reglulega. Þar kemurðu aldrei að tómum kofanum.

dew ShariThurow
Dögg Matthíasdóttir webdew og Shari Thurow á RIMC þarna um árið.

Fram til þessa

Þegar ég hóf háskólanám í Viðskiptafræði og Ferðaþjónustu við Háskólann á Akureyri 1997 hafði ég aldrei farið á internetið, öll heimildaöflun á stúdentsárunum fór fram á bókasafni Framhaldsskólans á Laugum. Ég man þegar ég heyrði fyrst um Google, hjá gestafyrirlesara að sunnan, fram að því var Alta Vista aðal leitarvélin.

Ég kunni á stærðir og skráarsnið á myndum af því ég hafði verið að brasa við myndvinnslu í Photoshop hjá pabba og hjá Dax ehf (forvera N4) og fékk því það verkefni að vinna við vefinn Akureyri.com (sem fór á hausinn með glæsibrag). Ég skrifaði texta þegar Friðrik Ómar bjó til fyrsta vefinn sinn, en við unnum saman á FM Akureyri 93,9. – Jebb, ég var líka einu sinni útvarpsplötusnúður.

Árin á Húsavík, 2003-2005, rak ég vef fyrir Tún, tómstunda- og menningarhús ungs fólks og lagði grunninn að því sem er í dag Visit Húsavík þegar ég starfaði fyrir Markaðsráð og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.

Það kom að því að ég fór suður, 2005, starfaði í 9 ár sem vefstjóri hjá Póstinum. Þar hef ég unnið að innri vef, vef merkilega klúbbsins, tnt.isstamps.is og postur.is en hann hefur tvisvar verið tekinn í gegn á þessum tíma.

Starf vefstjórans er ekki eins manns starf, auk samstarfsfólks hjá Póstinum í gegnum árin og tveimur auglýsingastofum (Íslenska og Hvíta húsið), hef ég unnið í samstarfi við TMSoftware og Kosmos og Kaos auk Gagarín og með Hlynur/grafísk hönnun. Þá hef ég unnið með starfsfólki í vefráðgjöf frá Sjá og Funksjón.

Frá því að ég fór af stað með webdew, hef ég unnið fjölbreytt verkefni í markaðssetningu á netinu fyrir viðskiptavini mína. Vefsíðugerð er fyrst og fremst í WordPress. Samfélagsmiðlar eru síbreytilegir, þar þarf að vera á tánum. 

Í samstarfi við Auglýsingastofuna Árnasyni (nú Vorar auglýsingastofan)  hef ég einnig unnið fyrir nokkra viðskiptavini og þar framleiddi Tjarnargatan  myndbönd til efnismarkaðssetningar.

Frá 2020 hef ég einnig starfað sem vefráðgjafi hjá Pipar\TBWA sem er auglýsingastofa og The Engine Nordics sem er leiðandi stafræn markaðsstofa í Evrópu. Þar eru samstarfsaðilar mínir strákarnir í Reykjavík Digital.

Frá 2022 hef ég einnig tekið að mér verkefni hjá Hoobla, sem er samfélag sjálfstætt starfandi sérfræðinga.  Verkefni þar hafa m.a. verið fyrir Hrafnistu, Hæfnisetur Ferðaþjónustunnar,  GynaMEDICA og Staðlaráð Íslands.

Frá 2023 hef ég einnig starfað fyrir WebMoDesign 

Dögg Matthíasdóttir - webdew

Dögg Matthíasdóttir er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur.
Dögg Matthíasdóttir er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur.

Viðurkenndur stafrænn markmaðssérfræðingur

Dögg Matthíasdóttir er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias.

Fór í gegnum þetta nám haustið 2022 og mæli hiklaust með því. 

 

Vefveröldin mín

Vertu velkominn, hér eru nokkrir af þeim samfélagsmiðlum sem ég er þátttakandi á, ýmist ég sjálf eða fyrirtækin mín.

Hafðu samband

Hvaða samskiptaleið hentar þér? Settu þig í samband við mig. 

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

© 2023 

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

Hafa samband

Samfélagsmiðlar

Leita

Leitið og þér munið finna