End of Content.
Hluti af stafrænni markaðssetningu eru samskipti við viðskiptavini gegnum samfélagsmiðla. Samfélagsmiðlar hafa öðlast sífellt meira vægi og jafnvel hefur verið sagt að fólk taki frekar mark á ráðleggingum gegnum samfélagsmiðla en frá vinum og kunningjum. Samfélagsmiðlar geta því verið mjög öflugir, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt.
Stefnumótun samfélagsmiðla fyrir þitt fyrirtæki og þína viðskiptavini er því mikilvægt að vinna og fylgja svo stefnunni.
Samfélagsmiðlar eru vefir á Internetinu og smáforrit eða öpp þar sem hægt er að eiga gagnvirk samskipti, t.d. viðskiptavinir við fyrirtæki og öfugt.
Skoðaðu vefveröld mína, þar eru tenglar á þá samfélagmiðla sem ég nota. Það eru vissulega mikið fleiri samfélagsmiðlar til; digg, dribble (fyrir hönnuði), mixi (stærri en Facebook í Japan), panoramio (myndir alls staðar að úr heiminum).
Vinsældir samfélagsmiðla eru gríðarlegar og notkun samfélagsmiðla er eitt það algengasta sem við gerum á Internetinu. Tölfræði um vinsældir samfélagsmiðla.
Það fer allt eftir tilgangi og menningu hvaða samfélagsmiðlar henta þínu fyrirtæki, félagasamtökum eða þínum persónulegu markmiðum.
Samfélagsmiðlar eru fjölmargir og mikilvægt fyrir þinn rekstur að velja réttu samfélagsmiðlana sem virka fyrir þig. Nýjir samfélagsmiðlar skjóta upp kollinum á hverju misseri og þar geta legið tækifæri, en þú verður að gæta þess að hafa afkastagetu til þess að geta tekið þátt í samskiptum við þína markhópa á þeim samfélagsmiðlum þar sem þeir eru.
Nokkrar spurningar sem Dögg hjá webdew reynir að svara við val á samfélagsmiðlum.
Notkun samfélagsmiðla á Íslandi tekur breytingum, hér er t.d. grein frá 2019 frá WebMo Design um notkun samfélagsmiðla á Íslandi.
Gallup er einnig með aðgengilega samfélagsmiðlamælingu.
Dögg hjá webdew.is getur tekið að sér umsjón samfélagsmiðla fyrir þig og þinn rekstur. Við skilgreinum og útbúum samfélagsmiðlaáætlun, birtingaáætlun og gerum samfélagsmiðladagatal sem við vinnum svo eftir. Ráðgjöfin byggir að sjálfsögðu á þeim þörfum sem skilgreindar eru, hegðun, ásýnd og skilgreiningu þeirra markhópa sem þú vilt ná til.
Svörun viðskiptavina á samfélagsmiðlum er hluti af umsjón samfélagsmiðla, ef þú vilt hafa það svoleiðis. Þessu hlutverki er einnig hægt að deila til annara starfsmanna, ef þú ert með þá. Það að svara fyrirspurnum gegnum samfélagsmiðla er líka hægt að stilla upp sem sjálfvirkni að hluta, svona er nú tæknin frábær.
Efnissköpun fyrir samfélagsmiðla getur verið hluti af umsjón samfélagsmiðla, en það er líka í boði að skapa efni fyrir samfélagsmiðla og svo tekur þú sjálf við og stýrir birtingum. Hvers konar færslur fara í birtingu, hvaða skilaboð ertu að senda viðskiptavinum í markhópunum þínum? Ertu að birta stutt myndbönd (Reels)? Myndefni og textagerð getur verið í höndum webdew en það er einnig í boði að fá handleiðslu um hvað þú getur gert á eigin vegum. Við finnum saman taktinn sem hentar þér og þinni virkni á samfélagsmiðlum.
Þetta virkar þannig að þú setur þig í samband við Dögg og við förum saman yfir stöðuna.
Við mótum stefnu fyrir samfélagsmiðla, val á hvaða miðlum þú átt að nota, hver ber ábyrgð á birtingu efnis og svörun, hvaða efni þú birtir á samfélagmiðlum. Og samfélagsmiðlaauglýsingar.
Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru alltaf að taka til sín stærri hluta af kökunni þegar kemur að birtingaáætlunum. En umhverfið er líka að breytast, nú þegar Facebook hóf að bjóða áskrift án auglýsinga.
Ég tek stöðuna, hvaða samfélagsmiðla verið er að nota nú þegar og hvort ástæða er til að gera einhverjar breytingar. Ég set upp stefnu fyrir hvern samfélagsmiðil sem verið er að nota, sem svo annað hvort þú sérð um að framfylgja eða getur fengið aðstoð við það.
Hversu mikla aðstoð þú vilt við samfélagsmiðla, e.t.v. við að útbúa efni á viðeigandi tungumáli, eða myndefni er valkvætt. Ég get séð um þetta fyrir þig ef það er það sem þú vilt. Ef þú ert tæknitröll og vilt sjálf/ur halda um stjórnartaumana þá er það líka í boði. Eiginlega það eina sem gengur ekki er að gera ekki neitt, það er ekki hvetjandi til viðskipta að þegja þunnu hljóði.
Stefnumótun samfélagsmiðla fyrir þinn vef kostar 50.000 kr og þar við bætist virðisaukaskattur. Ef þú færð webdew til að framfylgja stefnunni til lengri tíma, þá mæli ég með að við gerum samning um þjónustu í fastri áskrift, til dæmis til þriggja mánaða. Annars er stakur klukkutími á 19.900 krónur + vsk.
Hvaða samskiptaleið hentar þér? Settu þig í samband við mig.
© 2024 Allur réttur áskilinn
Leitið og þér munið finna
End of Content.