webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

Hafa samband

Samfélagsmiðlar

Leita

Edit Template

Hentu ólesna tölvupóstinum og búðu til betri heim 

Annað hvert ár er haldin í Tórínó á Ítalíu Slow Food hátíðin Terra Madre Salone de Gusto.

Í ár var hluti af dagskrá Terra Madre Salone del Gusto auðguð með fjölmörgum viðburðum sem Sloweb-hreyfingin stóð fyrir í kvikmyndahúsinu Cinema Centrale. Hreyfingin boðar nýja hugmynd: að sameina upplifunina af Slow Food og Sloweb í þágu hófsamari, hreinni og réttlátari lífsstíls, þar með talið hvað varðar notkun stafrænna miðla.

Hvað þýðir Sloweb?

Jú, við getum með auðveldum hætti vandað okkur í notkun stafrænna miðla og lagt okkar af mörkum til að minnka kolefnisspor okkar. 

Því miður náði ég ekki að sitja fyrirlestrana, þar sem harðfiskur og skreið áttu hug minn allan þessa daga (önnur saga) en ég náði að grípa með mér eina uppskrift Sloweb. 

Uppskriftin er svohljóðandi:

SLOWEB UPPSKRIFTIR | Nr. 1

Innhólfið þitt er yfirfullt

Hver ólesinn tölvupóstur tekur pláss á netþjónum sem keyra allan sólarhringinn.

  • 62 kg (136 pund) af CO2 á ári, aðeins við það að geyma allt að 1.000 tölvupósta.

ERFIÐLEIKASTIG: Auðvelt

INNIHALDSEFNI

  • Virkt tölvupósthólf
  • Gleymdar fréttabréfaáskriftir
  • Ólesin skilaboð sem hafa safnast upp í gegnum árin
  • 5 mínútur á viku

LEIÐBEININGAR

  1. Eyddu ólesnum tölvupóstum sem eru eldri en 6 mánaða
  2. Afskráðu þig af 3 fréttabréfum í dag
  3. Tæmdu ruslmöppuna á hverjum sunnudegi

Sloweb — Fyrir sjálfbæran stafrænan heim: léttan, hreinan og réttlátan

Skiptir ólesinn tölvupóstur máli?

Einn tölvupóstur með viðhengi jafngildir því að hafa ljósaperu kveikta í 25 mínútur.

Þegar þetta er margfaldað með þeim 333 milljörðum tölvupósta sem sendir eru daglega um allan heim, verður vandamálið svo umfangsmikið að erfitt er að horfa framhjá því. Innhólf okkar eru í raun örsmá, persónuleg gagnaver – en gagnaver eru meðal þeirra sem neyta mestrar orku á jörðinni.

Þú getur reiknað kolefnisspor þitt á https://www.kolefnisreiknir.is/ 

Fleiri uppskriftir finnurðu á https://sloweb.org/recipes/ 

QR kóði fyrir uppskriftir Sloweb
  • All Posts
  • Google Auglýsingar
  • Samfélagsmiðlar
  • Stafræn markaðssetning
  • Undarlegt ferðalag
  • Vefsíðugerð
  • Vefstefnumótun
  • Vefur vikunnar
  • Vefverslun
Fleiri greinar

End of Content.

Hafðu samband

Hvaða samskiptaleið hentar þér? Settu þig í samband við mig. 

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

© 2026 Allur réttur áskilinn

webdew | Dögg Matthíasdóttir

Hrauntungu 14 | 200 Kópavogi 

KT. 121175-3399

VSK: 123500 

Hafa samband

Samfélagsmiðlar

Leita

Leitið og þér munið finna