Ég tel mikilvægt að taka vefi reglulega til endurskoðunar, ekki ólíkt því að fara með bílinn sinn í skoðun á hverju ári.
Um daginn kom Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Culina að máli við mig og langaði til að gera breytingar á vefnum. Hennar aðaláhersla var að gera meira úr veisluþjónustunni á vefnum.
Ég byrjaði á skoða umferðina með greiningartólinu Google Analytics. Það er mjög mikilvægt að átta sig á því þegar um endurskoðun vefs er að ræða að vita hvaðan gestirnir koma, hvaða síður skoða þeir (og hverjar skoða þeir ekki), hve miklum tíma eyða þeir á vefnum og hvaða tæki voru þeir að nota þegar þeir komu í heimsókn. Það er margt fleira sem hægt er að skoða með greiningartólinu og auðvelt að gleyma sér þér.
Culina.is 2.0
- Efni rýnt og endurskoðað
- Nýtt efni skrifað
- Nýtt myndefni
- Tenglar yfirfarnir
- Nýtt heildarútlit
- Ný forsíða með áherslubreytingum
Culina.is 1.0
Verið var að vinna nýjan vef fyrir Culina 2014 þegar leiðir okkar Dóru lágu saman. Þá var sett upp nýtt kerfi en allt efni var afritað af gamla vefnum. Hlutverk og markmið vefsins voru endurskilgreind. Nýtt veftré sett upp og efni endurraðað byggt á þeim skilgreindu leitarorðum sem ákveðið var að sækjast eftir. Nýtt efni fyrir nýjar vörur var skrifað.
webdew annaðist
- Grisjun efnis
- Skilgreining hlutverks og markhópa
- Textaskrif
- Myndvinnsla
- Prófarkalestur
- Uppsetning á efni
- Vefráðgjöf
- Upplýsingaarkitektúr