Lestrarmiðstöð í Mjódd býður upp á viðurkenndar greiningar á lesblindu, námskeið og einkatíma fyrir þá sem eru með leshömlun. Þá gefur hún út og selur bókstafaspil sem hjálpa börnum að læra bókstafina og leggja á minnið.
Auður B. Kristinsdóttir er eigandi Lestrarmiðstöðvar í Mjódd og heldur úti vefnum lestur.is. Auður er kjarnakona og vill gera hlutina á eigin spýtur.
Allt efni á nýja vefnum var endurskoðað frá því sem áður var, endurskrifað af Auði en með leitarvélabestun í huga.
webdew annaðist
- Samskipti við nýjan hýsingaraðila
- Uppsetningu vefumsjónarkerfis
- Val á útliti og viðbótum
- Uppsetningu á tæknilegri virkni s.s. pöntunar og fyrirspurnarform
- Leitarvélabestun mynda
- Kennslu á nýja vefumsjónarkerfið
- Tæknilegar stillingar fyrir tölvupóst í tölvu og síma
Allt annað sá Auður um sjálf.