Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsvettvangur atvinnulífsins um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks í atvinnulífi. Nemastofa atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunnar og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem standa að viðkomandi félögum.
Ég hef unnið fyrir Nemastofu atvinnulífsins um nokkurt skeið, Ólafur Jónsson forsvarsmaður Nemastofu og nafni hans Ólafur Jónsson hjá Jons.is leituðu til mín sem vefstjóra til leigu þegar þá vantaði aðstoð við viðhald og uppfærslur á WordPress vef Nemastofu. Hvernig er er hægt að hafna því að vinna verkefni með tveimur mönnum sem báðir heita Óli Jóns? Það er svo sannarlega búið að reynast skemmtilegt verkefni.
Nú í aðdraganda sumars var komið að því að gera góða vorhreingerningu á vef Nemastofu. Mikið af efni var grisjað, vinna sem raunverulega er búið að vinna smátt og smátt undanfarna 18 mánuði. Auk þess að laga til í efni vefsins, var hann allur frískaður upp.
Farið var yfir virkni á vefnum, hvaða síður eru tengdar saman með innri tenglum og hvaða tenglar vísa út af vefnum, yfir á samstarfsaðila, því í tilfelli Nemastofu eru þeir fjölmargir.
Farið var yfir að þar sem það á við, væru viðeigandi skilaboð til aðgerða e. CTA eða Call to Action, auk þess sem efni var rýnt, yfirlesið og lagfært á ýmsan hátt.
Þá var skipt um þema, sem stýrir útliti vefsins, allt varðandi útlitið var frískað upp og endurbætt, ekki hvað síst til þess að vefurinn kæmi betur út á snjallsímum, en meirihluti heimsókna á vefinn eru gegnum þá gátt.
webdew annaðist
- Efnisskrif
- Vefstefnumótun
- Val á þema
- Útlit skapað með litum og virkni
- Leitarvélabestun
- Vefsíðugerð
- Prófarkalestur
- Innsetning á efni
- Vefstjóri til leigu
- Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum