Ég tel mikilvægt að taka vefi reglulega til endurskoðunar, ekki ólíkt því að fara með bílinn sinn í skoðun á hverju ári.
Um daginn kom Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Culina að máli við mig og langaði til að gera breytingar á vefnum. Hennar aðaláhersla var að gera meira úr veisluþjónustunni á vefnum.
Ég byrjaði á skoða umferðina með greiningartólinu Google Analytics. Það er mjög mikilvægt að átta sig á því þegar um endurskoðun vefs er að ræða að vita hvaðan gestirnir koma, hvaða síður skoða þeir (og hverjar skoða þeir ekki), hve miklum tíma eyða þeir á vefnum og hvaða tæki voru þeir að nota þegar þeir komu í heimsókn. Það er margt fleira sem hægt er að skoða með greiningartólinu og auðvelt að gleyma sér þér.
Auk þess:
- Efni rýnt og endurskoðað
- Nýtt efni skrifað
- Nýtt myndefni
- Tenglar yfirfarnir
- Nýtt heildarútlit
- Ný forsíða með áherslubreytingum
Endurbættan vef Culina má skoða hér.