- Viðskiptavinur: Áskaffi
- Verkefni: Heildar endurhönnun, SEO, þýðing á ensku og áframhaldandi þróun ferða.
- Vefslóð: askaffi.is
Áskaffi – Matur og menning í Skagafirði
Áskaffi í Héðinsminni er einn af þessum stöðum sem fanga sál íslenskrar kaffihúsamenningar. Þegar kom að því að endurnýja vefinn var markmiðið skýrt: að færa þessa upplifun yfir á stafrænt form og styðja við nýja markaðssókn í ferðaþjónustu.
Auður Herdís Sigurðardóttir eigandi Áskaffis er búin að vera með í undirbúningi matarferðir í Skagafirði í samstarfi við Crisscross matarferðir og Dóru Svavarsdóttur matreiðslumeistara. Haustið 2025 vissi ég af þörfinni fyrir nýjan vef fyrir Áskaffi, og í byrjun árs 2026 var svo komið að því að setja verkefnið í vinnslu.
Áskorunin
Gamli vefur Áskaffis var barn síns tíma; skipulagið var óljóst og hönnunin endurspeglaði ekki þá einstöku stemningu og gestrisni sem gestir upplifa í þegar þeir heimsækja Héðinsminni eða gamla bæinn á Stóru Ökrum. Auk þess að gera framsetningu á starfseminni skýrari var um að ræða kynningu á nýjung, þar sem Matarslóðir Skagafjarðar voru fyrst kynntar á Mannamóti ferðaþjónustunnar, sem fram fór í Kórnum fimmtudaginn 15. Janúar 2026. Því miður tókst mér ekki að vera þar, í fyrsta sinn í 10 ár, því Mannamót hafa verið fastur punktur í tilverunni frá því að farið var að halda þennan viðburð. Í ár átti ég ekki heimangengt, var í túr.
Lausnin
Verkefninu var skipt í tvo markvissa áfanga til að hámarka árangur:
Áfangi 1 – Janúar ( fyrir Mannamót): Vefurinn var endurbyggður frá grunni með nýju skipulagi. Lögð var áhersla á að koma „Matarslóðum Skagafjarðar“ rækilega á framfæri með aðgengilegum upplýsingum og fallegu viðmóti sem virkar jafnt í tölvum sem símum.
- Áfangi 2 – Febrúar (Þýðing og sýnileiki leitarvéla): Eftir vel heppnað kynningarátak var vefurinn þýddur yfir á ensku til að mæta þörfum erlendra ferðamanna. Samhliða því var farið í ítarlega leitarvélabestun (SEO) til að tryggja að Áskaffi væri efst á blaði þegar fólk leitar að veitingum og upplifun í Skagafirði.
- Áfangi 3 – Í vinnslu (áframhaldandi vöruþróun): Samstarfið heldur áfram. Nú er unnið að því að fjölga ferðunum sem eru í boði á vefnum. Við hvetjum alla til að fylgjast reglulega með askaffi.is þar sem nýjar upplifanir munu líta dagsins ljós á næstunni.
Menningarleg upplifun - Kaffihlaðborðið
Hluti af vinnunni var að koma mikilvægum viðburðum Áskaffis á framfæri. Einn af hápunktum sumarsins er klassískt íslenskt kaffihlaðborð sem haldið er fyrstu helgina í júní, júlí, ágúst og september. Þetta er upplifun sem enginn Íslendingur á ferðalagi um Skagafjörðinn ætti að láta framhjá sér fara – sannkallað dekur fyrir bragðlaukana í dásamlegu umhverfi.
Niðurstaðan
Nýi vefurinn er lifandi tæki sem vex með rekstrinum. Með skýrara skipulagi, betra myndmáli og markvissri SEO vinnu, er Áskaffi nú betur í stakk búið til að taka á móti gestum hvaðanæva úr heiminum, með skýra áherslu á sérstöðu staðarins og þátttöku í Matarslóðum Skagafjarðar.
Webdew annaðist
- Vefstefnumótun
- Val á þema
- Útlit skapað með litum og virkni
- Textaskrif
- Leitarvélabestun
- Vefsíðugerð með WordPress
- Prófarkalestur
- Innsetning á efni
- Vefstjóri til leigu
- Þýðingar á efni vefsins
- Prófanir á virkni á öllum snjalltækjum